Fara í efni

Laust starf - Hagfræðingur Ferðamálastofu

Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson

Rannsóknasvið Ferðamálastofu óskar eftir að ráða öflugan einstakling í greiningu og miðlun hagstærða sem tengjast íslenskri ferðaþjónustu. Um er að ræða nýtt og spennandi starf hjá Ferðamálastofu. Starfshlutfall er 100% og mun viðkomandi hafa starfsaðstöðu á skrifstofu Ferðamálastofu í Reykjavík.


Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á ferðamálum, getu til að meta rekstur og umhverfi ferðaþjónustu og gildi rannsóknaniðurstaðna í því sambandi. Viðkomandi einstaklingur þarf að eiga auðvelt með að koma þeim upplýsingum á framfæri á hnitmiðaðan hátt, bæði í rituðu og mæltu máli.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Greining á fyrirliggjandi talnaefni, rannsóknaniðurstöðum og úrvinnslu gagna sem tengjast ferðamálum á Íslandi
  • Greining á gögnum um erlenda markaði
  • Spá um þróun út frá fyrirliggjandi gögnum
  • Miðlun þekkingar og upplýsinga
  • Þátttaka í þróun rannsóknasviðs

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í hagfræði eða viðskiptafræði með sérhæfingu í hagfræði
  • Greiningarhæfni og næmni fyrir gildi rannsóknaniðurstaðna
  • Gott vald á íslensku og ensku, einkum á rituðu máli
  • Reynsla af rannsóknastörfum, textaskrifum og upplýsingamiðlun
  • Frumkvæði og skipuleg vinnubrögð
  • Hæfni í samskiptum og þverfaglegri samvinnu


Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar og umsóknarfrestur

Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 29. október 2018. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.

Um Ferðamálastofu

Ferðamálastofa stuðlar að þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar grunnstoðar í íslensku samfélagi. Auk þess vinnur Ferðamálastofa að samræmingu, greiningum og rannsóknum í ferðaþjónustu með hliðsjón af stefnu stjórnvalda.

Eitt af hlutverkum Ferðamálastofu er að vinna að gagnaöflun og rannsóknum í ferðaþjónustu á Íslandi. Verkefni í þessum flokki varða bæði talnagögn og landfræðilegar upplýsingar, sem auka þekkingu um ferðamenn og atvinnugreinina, bæta gæði, auka arðsemi, huga að þolmörkum og styrkja innviði greinarinnar. Þannig stuðlar Ferðamálastofa að því að niðurstöður séu nýttar við ákvarðanatöku í greininni, með skýrri framsetningu niðurstaðna og markvissri upplýsingagjöf.