Fara í efni

Kynningarfundur ferðamálaráðherra – Bein útsending

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Á fundi ferðamálaráðherra í dag verða kynnt drög að niðurstöðum vinnu við mat á álagi vegna fjölda ferðamanna á Íslandi m.t.t. ástands og getu innviða, umhverfis og samfélags. Jafnframt verða kynnt fyrstu drög að stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík kl. 8:30-12 og er í beinni útsendingu hér að neðan.

Bein útsending


Bein slóð á útsendingu á Youtube: https://youtu.be/5o_gCUV1YaY

Viðmið sjálfbærni vegna fjölda ferðamanna

Á haustmánuðum 2017 ákvað ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að ráðast í viðamikið verkefni um viðmið sjálfbærni vegna fjölda ferðamanna á Íslandi m.t.t. innviða og samfélags. Slíkt verkefni hefur ekki verið unnið áður á landsvísu sem gerir það einstakt á heimsvísu. Fyrsta áfanga verkefnisins lauk haustið 2018 með skilgreiningu hátt í sjötíu vísa um sjálfbærni út frá efnahagslegum, umhverfislegum og samfélagslegum þáttum, í því skyni að leggja mat á hversu mörgum ferðamönnum er hægt að taka á móti á Íslandi.

Annar áfangi - mat á álagi vegna fjölda ferðamanna

Annar áfangi verkefnisins hófst í beinu framhaldi en hann snerist um að leggja mat á álag vegna fjölda ferðamanna á Íslandi m.t.t. ástands og getu innviða, umhverfis og samfélags. Í þeim áfanga var unnið að gildissetningu vísa um sjálfbærni úr fyrsta áfanga á sviði efnahags, samfélags og umhverfis. 

Kynning á stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030

Þeirri vinnu er nú að mestu lokið og mun ráðherra kynna fyrstu drög niðurstaðna til umræðu ásamt sérfræðingum Eflu verkfræðistofu sem hafa unnið að verkefninu ásamt fjölda utanaðkomandi sérfræðinga. Ferðamálaráðherra mun jafnframt kynna fyrstu drög að stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030 sem unnið hefur verið að undanfarið í samvinnu stjórnvalda, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka ferðaþjónustunnar.

Þessi tvö verkefni leggja grunninn að framtíðarstefnumótun íslenskrar ferðaþjónustu 2020-2030 sem hefst í sumar og verður lokið vorið 2020.

Dagskrá:

08:00 – 08:30   Kaffi og léttar veitingar

08:30 – 09:00  Ávarp ferðamálaráðherra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur
                        Drög að stefnuramma í ferðaþjónustu til 2030
                        Fyrstu niðurstöður álagsmats fyrir fjölda ferðamanna á Íslandi.
09:00 – 09:30  Yfirferð yfir vinnuna
                        Markmið, aðferðir og vinnustofur – útskýring á aðferðum, framsetningu o.fl.
09:30 – 09:45  Þjóðhagslegar stærðir
09:45-10:00     Kaffihlé
10:00 – 10:40   Innviðir
                         Samgöngur, veitur, úrgangsmál
10:40- 11:00    Umhverfi
                        Náttúrustaðir og loftslagsmál
11:00-11:20     Samfélagsmál og stoðþjónusta
                        Samfélagsáhrif, lögregla, heilsugæsla, húsnæðismál,
11:20-11:40     Samantekt
11:40-12:00    Umræður og fundarlok

Fundur á Akureyri 5. júní

Annar fundur um sama efni verður haldinn á Akureyri miðvikudaginn 5. júní kl. 08:30-12:00 í Hofi. Fundirnir eru ætlaðir öllum hagaðilum í íslenskri ferðaþjónustu til kynningar og umræðu á þessum fyrstu drögum niðurstaðna.

Skráning á fundinn