Fara í efni

Ísafjörður - Stafræn fræðsla og markaðssetning

Ferðamálastofa býður í samvinnu við Vestfjarðastofu upp á námskeið í stafrænni markaðssetningu sem ætlað er litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Farið verður í helstu atriði stafrænnar þróunnar og markaðssetningar ferðaþjónustufyrirtækja, svo sem bókunarsíður (Booking og Expedia t.d.), Google, samfélagsmiðla og heimasíður, leitarvélabestun og gerð markaðsáætlana.

Námskeiðið verður lifandi og hagnýtt og gert er ráð fyrir að þátttakendur taki með sér tölvur, bretti upp ermar og vinni markvisst á meðan á námskeiðinu stendur.

Þau fyrirtæki sem taka þátt í námskeiðinu eiga kost á að sækja styrk til Vestfjarðastofu um áframhaldandi ráðgjöf á einhverju sviði stafrænna mála eða markaðssetningar.

2ja daga námskeið:  23. janúar og 5.febrúar
Staðsetning:             Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, 400 Ísafirði
Kennari:                    Inga Rós Antoníusdóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunnar hjá Ferðamálastofu
Tími:                          Kennt kl. 9-12 & 13-16 Verð: 22.900 (innifalið kennslugögn, kaffi/te og léttur hádegisverður)
Skráning:                  Vestfjarðastofa, Díana Jóhannsdóttir, diana@vestfirdir.is

  • Áhersla á lítil og meðalstór fyrirtæki.
  • 10-12 þátttakendur. Kennt er í litlum hópum til þess að hægt sé að vinna markvisst á staðnum.
  • Inga Rós Antoníusdóttir veitir allar frekari upplýsingar ingaros@ferdamalastofa.is

ATH.: Fyrirhugað er að halda námskeið á Patreksfirði og Hólmavík síðar á árinu.