Fara í efni

Heimflutningur Íslendinga frá Kanaríeyjum

Ferðaskrifstofurnar VITA, Ferðaskrifstofa Íslands og Heimsferðir, í samstarfi við Icelandair, hafa skipulagt flug frá Kanaríeyjum til Íslands, í gegnum Las Palmas og Tenerife, til að flýta för þeirra fjölmörgu Íslendinga sem staddir eru á eyjunum og áttu bókað flug heim fyrir páska. Búið er að setja útgöngubann á alla sem staddir eru á eyjunum og hótel eru að loka eitt af öðru.

15 flug næstu daga

Icelandair hefur sett upp 15 flug næstu fjóra daga þar sem ferðaskrifstofurnar í samráði við Ferðamálastofu flýta för allra farþega sem eru á þeirra vegum á eyjunum en þeir eru á milli tvö til þrjú þúsund talsins. Reiknað er með að allir farþegar ferðaskrifstofanna verði komnir heim á föstudag.

Sæti í almennri sölu

Vegna fjölda fyrirspurna hefur Ferðaskrifstofan VITA og Ferðaskrifstofa Íslands og Heimsferðir einnig hafið almenna sölu á flugferðum sem áætlaðar eru seinnipartinn á föstudag frá Tenerife og Kanarí. Flugi verður bætt við ef mikil eftirspurn verður. Markmið Icelandair, ferðaskrifstofanna og Ferðamálastofu er að gefa öllum þeim sem ekki hafa þegar gert ráðstafanir til að komast aftur heim til Íslands tækifæri til þess á næstu dögum.

Hvert á fólk að snúa sér?

Til að nýta sér þessi flug á fólk að snúa sér til sinnar ferðaskrifstofu, þ.e. þeir sem eru í pakkaferðum á þeirra vegum. Sama á við um þá sem vilja nýta sæti í almennri sölu, þ.e. þeir geta snúið sér til einhverra af ferðaskrifstofunum þremur.