Fara í efni

Hádegisfyrirlestur - Spágerð og árstíðasveifur í ferðaþjónustu

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Ferðamálastofa tekur nú upp þráðinn í fyrirlestraröð sinni um áhugaverð rannsóknarefni í ferðaþjónustu. Fyrstu hádegisfyrirlestrarnir þetta vorið verða haldnir fimmtudaginn 20. maí, kl. 12:10-13:30. Létt snarl og drykkir verða á boðstólum frá 11.30. Vegna sóttvarna þurfa þeir sem koma á staðinn að forskrá sig á viðburðinn og hámark er 50 manns. Kynningunni verður einnig streymt beint um netið og hún gerð aðgengileg síðar á vefsíðu Ferðamálastofu.

Kynntar verða tvær nýjar greiningar á fundinum. Dr. Gunnar Haraldsson hjá ráðgjafarfyrirtækinu Intellecon, sem vinnur nú að gerð formlegs spálíkans ferðaþjónustu fyrir Ferðamálastofu, deilir með fundarmönnum álitaefnum og niðurstöðum fyrirtækisins um bestu hagfræðilegu og tölfræðilegu forsendur fyrir góðum spám fyrir þennan geira.

Jóhann Viðar Ívarsson hjá Ferðamálastofu kynnir greiningu sína á árstíðasveiflum í íslenskri ferðaþjónustu, áhrifum þeirra á greinina og hvernig íslenska árstíðasveiflan er í samanburði við ýmsar aðrar þjóðir Evrópu.