Fara í efni

Guðlaug hlýtur Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu árið 2019

Verðlaununum fagnað í blíðskaparveðri við Guðlaugu í gær.
Verðlaununum fagnað í blíðskaparveðri við Guðlaugu í gær.

Verkefnið „Guðlaug – heit laug í grjótvörn við Langasand á Akranesi“ er handhafi Umhverfisverðlauna Ferðamálstofu árið 2019. Verðlaunin voru afhent í gær í blíðskaparveðri við Guðlaugu.

Einstakt verkefni

Verkið var unnið á árunum 2017 - 2018 og samanstendur af útsýnispalli, heitri laug og síðan grynnri laug sem nýtur vatns úr yfirfalli efri laugarinnar. Mannvirkið er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi og fellur vel að þörfum útvistarsvæðisins við Langasand, í miðjum grjótgarði fyrir opnu hafi.

30 þúsund gestir fyrsta árið

Guðlaug er dæmi um glæsilega framkvæmd þar sem vel er að verki staðið og áhugi heimamanna og fagaðila á að vanda til verka augljós. Guðlaug var formlega opnuð 8. desember 2018 og er því eins árs um þessar mundir. Guðlaug nýtur mikilla vinsælda og hafa um 30 þúsund gestir hvaða af heimsótt laugina á þessu eina ári.

Stílhrein hönnun með stórfenglegu útsýni

Hönnunin var unnin af Basalt arkitektum og Mannvit verkfræðistofu. Að framkvæmdinni komu m.a. Ístak, Vélaleiga Halldórs Sig., Rafþjónusta Sigurdórs, Pípulagningaþjónustan og Trésmiðjan Akur.

Hrólfur Karl Cela hjá Basalt arkitektum lýsir lauginni á eftirfarandi máta: „Hugmyndin fyrir Guðlaugu kviknaði útfrá dældum sem myndast umhverfis steina á sandinum, þannig myndast litlar náttúrulegar „laugar“ í flæðamálinu. Þessa hugmynd tókum við svo áfram og formuðum mannvirki á þremur stöllum í sjóvarnargarðinum, sem hver og einn hverfist um stakan stein líkt og á ströndinni. Efst er útsýnispallur sem vísar til skipsstafns, í miðjunni er laugin sjálf sem nýtur útsýnis út á hafið og skjóls frá pallinum fyrir ofan, neðst er svo laug þar sem sjórinn og vatnið frá lauginni fyrir ofan blandast“.

Fallegur áningarstaður fyrir alla til að njóta

Akraneskaupstaður sótti um í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða árið 2017 og fékk 30 milljóna króna styrk til að hefjast handa við verkefnið. Markmið styrkveitingarinnar var skapa nýtt aðdráttarafl og styrkja þannig uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu.

Guðlaug fær umhverfisverðlaun Ferðamálastofu

Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri og Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, við Guðlaugu í gær eftir að verðlaunin höfðu verið afhent.

Umhverfisverðlaun veitt frá árinu 1995

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 25. sinn sem þau eru afhent. Verðlaunin eru nú í fjórða sinn veitt fyrir verkefni sem hlutu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða og voru til fyrirmyndar. Það þýðir að verkefninu sé lokið, reglum framkvæmdasjóðsins fylgt og það hafi verið í samræmi umhverfistefnu Ferðamálstofu og áherslur Framkvæmdasjóðsins um sjálfbæra þróun, gæði hönnunar og skipulags.

Um verðlaunagripinn

Verðlaunagripurinn ber heitið ,,Sjónarhóll“ og eru höfundar hans Jón Helgi Hólmgeirsson og Védís Pálsdóttir. Hugmyndin bakvið gripinn er hvernig hægt er að upplifa náttúruna frá mismunandi sjónarhornum og þá einstöku upplifun hvers og eins að nálgast áfangastað.
Látúnstangir mynda þrívíðan hól úr uppréttum hæðarlínum. Línuteikningar bæta við hólinn hlíðum og árfarvegum. Hóllinn varpast í speglum sem myndar nýjar víddir eftir því hvaðan á er litið. Sjónarhóll er í senn náttúran, samspilið við hið manngerða og sjónarhornið sem upphefur upplifunina.