Fara í efni

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða: Hægt að hefja undirbúning umsókna

Þjónustuhús við upphafi gönguleiðar í Stórurð en verkefnið Dyrfjöll – Stórurð, gönguparadís er meðal…
Þjónustuhús við upphafi gönguleiðar í Stórurð en verkefnið Dyrfjöll – Stórurð, gönguparadís er meðal verkefna sem Framkvæmdasjóðurinn hefur styrkt.

Opnað verður fyrir umsóknir vegna næstu úthlutunar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða öðru hvoru megin við mánaðamótin september-október. Aðilar eru hvattir til að huga að umsóknum sínum í tíma og er ekkert því til fyrirstöðu að þeir hefji undirbúning nú þegar.

Hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða 

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitir styrki til uppbyggingar, viðhalds og verndunar ferðamannastaða sem eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila allt um land og til  aðgerða sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

Bundið við tilteknar framkvæmdir 

Vert er að undirstrika að aðeins eru veittir styrkir til tiltekinna framkvæmda á ferðamannastöðum, ekki til staðanna sem slíkra eða til aðila. Þá veitir sjóðurinn ekki framlög vegna meðal annars rekstrarkostnaðar ferðamannastaða eða til verkefna sem þegar er lokið.

Vandaður undirbúningur borgar sig

Þeim sem ætla sér að sækja um í sjóðinn er ekkert að vanbúnaði að hefja undirbúning. Þannig má t.d. kynna sér lög nr. 75/2011 um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og reglugerð um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða þar sem nánar er nánar fjallað um styrkveitingar, fyrirkomulag úthlutana og margt fleira (reglugerðin gæti tekið einhverjum breytingum fyrir næstu úthlutun). Aðilum er bent á að gott getur verið að taka myndir af svæðum á meðan jörð er enn auð.