Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2026

Brimketill er meðal staða sem fengið hafa úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Mynd: Markaðsstofa Reykjaness
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2026.
Opnað verður fyrir umsóknir þann 7. október og umsóknarfrestur er til kl. 13 þriðjudaginn 4. nóvember 2025.
Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Í úthlutuninni fyrir árið 2026 er lögð áhersla á framkvæmdir sem stuðla að bættu öryggi ferðamanna. Gæðamat sjóðsins tekur mið af þessari áherslu og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins og eyðublaðið „Áhættumat framkvæmda“ sem finna má á upplýsingasíðu um umsóknir.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
- Öryggi ferðamanna.
- Náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
- Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda. Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.
Sjóðnum er ekki heimilt m.a.:
- Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
- Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
- Veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.
Gæði umsókna
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn, skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið.
Hvar ber að sækja um?
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is en hlekkur á umsókn er á upplýsingasíðu um umsóknir.
Umsóknarfrestur
Umsóknartímabil er frá og með 7. október til kl. 13 þriðjudaginn 4. nóvember 2025. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.