Fara í efni

Ferðaþjónustufyrirtæki fari að fyrirmælum og hugi að öryggisætlunum

gosiðFerðamálastofa vill að gefnu tilefni ítreka við ferðaþjónustufyrirtæki sem bjóða upp á ferðir á gossvæðið við Litla-Hrút að fara að öllu eftir fyrirmælum og leiðbeiningum lögreglu og björgunarsveita á staðnum. Mikilvægt er að gæta í öllu öryggis ferðamanna og það er helst tryggt með því að farið sé eftir þeim reglum sem settar eru um umferð á svæðinu.

Sérstaklega er vakin athygli á að allur akstur að gosstöðvunum er ólöglegur utan vega akstur hvort sem um er að ræða bíla, mótorhjól eða önnur vélknúin ökutæki nema viðkomandi hafi undanþágu frá banninu skv. 31. gr. náttúruverndarlaga.

Hugi að öryggisáætlunum

Öllum ferðaþjónustufyrirtækjum er sem fyrr skylt að vera með gildandi öryggisáætlun. Ferðamálastofa hvetur þá ferðaþjónustuaðila, sem hyggjast bjóða upp á ferðir á gossvæðið, að huga að gerð öryggisáætlana eða uppfærslu á fyrirliggjandi öryggisáætlun vegna þeirra ferða. Hlekkur fyrir leiðbeiningar um gerð öryggisáætlana er hér að neðan.

Öryggisáætlanir fyrir allar ferðir

Mynd: Benedikt Gunnar Ófeigsson/Veðurstofa Íslands