Fara í efni

Þjóðernasamsetning í ágústmánuði

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Vegna mikillar eftirspurnar er hlutfallsskipting þjóðerna úr brottfarartalningu Ferðamálastofu fyrir nýliðinn ágústmánuð birt. Þegar staðfest tala liggur fyrir hjá Isavia um heildarfjölda brottfararfarþega frá Íslandi í ágúst verður hægt að ákvarða fjölda þeirra eftir þjóðernum.

Hlutfallsskipting gefur til kynna að brottfarir erlendra farþega frá Íslandi í ágúst hafi verið um 88,1% af heildarbrottförum. 

 

Brottfarir erlendra farþega 

Tvær af hverjum fimm brottförum erlendra farþega í ágúst voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna. Þjóðverjar komu þar á eftir með eina af hverjum tíu brottförum. Í þriðja sæti komu brottfarir Ítala (6,3%) og í því fjórða Frakka (5,6%). Hér til hliðar má sjá yfirlit yfir hlutfallsskiptingu tíu stærstu þjóðerna en samtals voru brottfarir þeirra 80,5%. 

 

Ítarlegri tölfræði verður birt á vefsíðu Ferðamálastofu 10. september þegar staðfest tala liggur fyrir hjá Isavia um heildarfjölda brottfara frá Íslandi í ágúst.