Fara í efni

Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu 19 janúar

Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu verður haldinn 19 janúar
Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu verður haldinn 19 janúar

Þann 19. janúar næstkomandi verður Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn hátíðlegur í Grósku. Af því tilefni er það fyrirtæki verðlaunað sem þykir hafa skarað fram úr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og framúrskarandi samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu á árinu.

Tilnefningarnar geta verið frá aðilanum sjálfum eða öðrum og er hægt að tilnefna fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir, einstaklinga eða alla þá sem þykja hafa unnið markvisst að jákvæðri þróun ferðaþjónustu og sjálfbærni, aðilar sem hafa í efni sínu og verki hvatt til ábyrgrar ferðahegðunar, ábyrgra viðskiptahátta og stuðlað að góðri umgengni um íslenska náttúru í sátt við íbúa.
Horft er til eftirfarandi þátta í leitinni að fyrirmyndar fyrirtæki í Ábyrgri ferðaþjónustu:

•             Hefur fyrirtækið birt markmið um ábyrgar ferðaþjónustu á vef sínum?
•             Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um að ganga vel um og virða náttúruna?
•             Hvernig mælir fyrirtækið öryggi ferðamanna og háttvísi í þeirra garð?
•             Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um réttindi starfsfólks?
•             Getur þú gefið dæmi um hvernig fyrirtækið hefur jákvæð áhrif á nærsamfélagið?

Hægt er að tilnefna aðila með því að smella á hnappinn að neðan. 

Tilnefna ferðaþjónustuaðila

Ef þú veist um fyrirtæki sem þér þykir hafa skarað fram úr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu þá hvetjum við þig til að tilnefna viðkomandi fyrirtæki. Athygli er vakin á því að tilnefning er nafnlaus.

Verðlaunahafi verður svo tilkynntur á Degi Ábyrgrar ferðaþjónustu af verndara Ábyrgrar ferðaþjónustu, forseta Íslands þann 19. janúar