Fara í efni

Auglýst eftir framkvæmdaaðila rannsóknar á innlendri ferðaþjónustu á Norðurlöndunum

Vitinn á Malarrifi á Snæfellsnesi. Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson
Vitinn á Malarrifi á Snæfellsnesi. Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson

Norræna ráðherranefndin óskar eftir tilboðum í framkvæmd rannsóknar á innlendri ferðaþjónustu á Norðurlöndunum undir heitinu „Exploring domestic tourism in the Nordics.“

Rannsóknin miðar að því að veita innsýn inn í þá þróun sem hefur átt sér stað á innlendri ferðaþjónustu á Norðurlöndunum frá því að Covid-19 heimsfaraldurinn skall á og um leið spá fyrir um framtíðarþróun. Áhersla verður lögð á að safna upplýsingum um hvernig tekist hefur til við að þróa og markaðssetja innlenda ferðaþjónustu á Norðurlöndunum.

Nánari lýsingu á verkefninu og útboðsgögn má nálgast hér: Call for Tenders: Exploring Domestic Tourism in the Nordics

Frestur til að skila inn umsókn er til föstudagsins, 29 apríl.

Tengiliður varðandi útboð: Sini Markoff sini.markoff@gov.fi