Fara í efni

Arnar Már Ólafsson skipaður ferðamálastjóri

Arnar Már Ólafsson hefur verið skipaður Ferðamálastóri.
Arnar Már Ólafsson hefur verið skipaður Ferðamálastóri.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Arnar Má Ólafsson til að gegna embætti ferðamálastjóra.

Arnar Már hefur áratuga stjórnunarreynslu í ferðaþjónustu og starfaði síðast sem leiðtogi markaðsmála hjá Icelandia. Hann er með meistaragráðu á sviði alþjóðamarkaðs- og ferðamálafræða frá Université de Savoie.

Áður starfaði hann um árabil hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og Iceland Rovers ásamt því að hafa starfað sem leiðsögumaður í tugi ára. Þá hefur Arnar starfað sem kennari í ferðamálafræði í Háskóla Íslands, lektor og brautarstjóri ferðamálafræði við Háskólann á Akureyri og forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands.

Umsækjendur um starfið voru 14 en einn umsækjenda dró umsókn sína til baka. Skipuð var hæfnisnefnd sem mat tveir umsækjendur hæfasta til að gegna embætti ferðamálastjóra. Að loknum ráðningarviðtölum ráðherra var það heildstætt mat að Arnar Már Ólafsson stæði öðrum umsækjendum framar, sakir umfangsmeiri reynslu af árangursríkri stjórnun, hagnýtrar og fjölbreyttrar reynslu á sviði ferðamála, yfirgripsmikillar þekkingar og menntunar ásamt skýrrar sýnar á stefnumótandi verkefni Ferðamálastofu.

Skipunin er til fimm ára samkvæmt meginreglu um skipan forstöðumanna ríkisstofnana. Arnar Már mun taka við embætti ferðamálastjóra hinn 1. mars 2023 en fram að því mun Elías Bj. Gíslason verða starfandi ferðamálastjóri.

Starfsfólk Ferðamálastofu býður Arnar Má velkominn og hlakkar til samstarfsins. :)