Almyrkvinn 12. ágúst - Upptaka frá kynningarfundi fyrir ferðaþjónustuaðila
15.04.2026
Síðastliðinn mánudag stóðu Almannavarnir fyrir fjölsóttum kynningarfundi fyrir ferðaþjónustuaðila. Fundarefnið voru fyrirhugaðar ráðstafanir vegna almyrkvans á vesturhluta landsins þann 12. ágúst 2026.
Fundurinn var sá fyrsti í röðinni en fleiri slíkir eru áætlaðir, eftir því sem nær dregur þessum einstaka viðburði.
Dagskrá:
- Verkefnið - nálgun stjórnvalda - sviðsábyrgðarreglan
Runólfur Þórhallsson yfirlögregluþjónn almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. - Upplýsingar um lokanir - staðan í dag
Vegagerðin - Umferðaskipulag
Stuttar kynningar frá lögregluembættum um undirbúning umferðarskipulags. - Náttúruverndarstofnun - Friðlýst svæði og umgengi
Inga Dóra Hrólfsdóttir sviðsstjóri Landvörslusviðs.
Fundurinn var tekinn upp og má nálgast upptökuna hér að neðan.