Fara í efni

150 þúsund brottfarir í nóvember

150 þúsund brottfarir í nóvember

Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í nóvember voru um 150 þúsund talsins samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um fimm þúsund fleiri en í nóvember á síðasta ári.

Fjölgunin nam 3,7% á milli ára sem er mun minni fjölgun en hefur mælst milli ára í nóvember síðastliðin ár.

Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir í nóvember eða tæpur helmingur brottfara. Bandaríkjamönnum fjölgaði um 8,6% í nóvember en Bretum fækkaði um 5,7%.

Frá áramótum hafa tæplega 2,2 milljónir erlendra farþega farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 5,8% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra.


Fjölgun í nóvember

Farþegum í nóvember fjölgar nú um 3,7% milli ára sem er með minnsta móti í samanburði við fjölgunina síðustu árin. Verulega dró úr fjölguninni 2017 en frá 2015-2016 mældist hún 61,4% og 34,1% frá 2014-2015.

Farþegar í nóvember hafa meira en tvöfaldast á fimm ára tímabili en fjölgunin hefur verið að jafnaði 27,2% milli ára.

Bandaríkjamenn og Bretar tæplega helmingur

Á grafinu hér til hliðar má sjá tólf fjölmennustu þjóðernin í nóvember. Brottfarir Bandaríkjamanna voru 24,3% af heild en þeir voru 8,6% fleiri í ár en á síðasta ári. Næstfjölmennastir voru Bretar eða 22,9% af heild en þeir voru 5,7% færri en árið 2017. Samtals voru Bandaríkjamenn og Bretar 47,2% af heild í nóvember. 

Þar á eftir komu Þjóðverjar, 4,2% af heild, Kanadamenn, 4,0% af heild og Pólverjar, 2,6% af heild. Af tólf fjölmennustu þjóðernunum mátti sjá hlutfallslega mesta aukningu í brottförum Ítala (57,7%), Kínverja (18,4%) og Kanadamanna (14,3%).

Dregið hefur úr fjölgun

Sé tímabilið frá áramótum skoðað (janúar-nóvember) í samanburði við sama tímabil nokkur ár aftur í tímann má glögglega sjá að dregið hefur verulega úr þeirri fjölgun sem verið hefur síðustu ár. Á myndinni hér til hliðar má sjá samanburð fjögur ár aftur í tímann, sem sýnir þetta vel. Frá áramótum hefur verið 5,8% fjölgun en á sama tíma fyrir ári var hún 25,4%. Næstu tvö tímabil þar á undan hafði fjölgun á milli ára verið á bilinu 30-38% milli ára.

7,4% fækkun frá einu stærsta markaðssvæðinu

Sé breytingin milli ára á tímabilinu janúar til nóvember skoðuð nánar eftir mörkuðum má sjá að dregið hefur úr fjölgun frá öllum mörkuðum í samanburði við fyrri ár. Norðurlandabúum hefur fækkað milli ára 2017 til 2018 um 9%, Bretum um 7%, Mið- og Suður-Evrópubúum um 3%. N-Ameríkönum hefur hins vegar fjölgað um 17% og þeim þjóðum sem flokkast undir "annað" um 11% en þar undir eru meðal annars Asíubúar og Austur-Evrópuþjóðir. Nánari skiptingu þess hóps má sjá á skífuritinu hér neðar á síðunni.

Betri greining með fjölgun þjóðerna í talningu

Sá hópur sem hefur stækkað hvað mest samanstendur af ,,öðrum þjóðernum“ en þar á meðal eru Asíuþjóðir. Til að fá betri mynd af samsetningu farþega var þjóðernum í talningum fjölgað úr 17 í 32 í júní á síðasta ári, en þar var meðal annars bætt við Hong Kong-búum, Indverjum, Suður-Kóreumönnum, Singapúrbúum og Taívönum. Niðurstöður úr talningum sýna að 8,6% farþega það sem af er ári má rekja til Asíubúa og 5,8% til Austur-Evrópubúa.

Ferðir Íslendinga utan

Um 51 þúsund Íslendingar fóru utan í nóvember í ár eða 1% færri en í nóvember 2017. Samtals voru brottfarir Íslendinga á tímabilinu janúar til nóvember um 618 þúsund talsins eða 7,8% fleiri en á sama tímabili árið 2017.

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnun sem Isavia lét framkvæma meðal brottfararfarþega á fyrsta ársfjórðungi ársins benda til að um 93% brottfararfarþega séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og að 3,5% séu erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma. Þeir sem millilenda án þess að fara út af flugvellinum séu 1,9% og þeir sem millilenda og nýta tækifærið til að fara út af flugvellinum og heimsækja einhverja staði séu 2,0%. Könnunin var áður framkæmd sumarið 2017 og í nóvember 2017. 

Sjá nánar
Skiptingu milli þjóðerna má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.