Fara í efni

Brúin yfir Jökulsá á Fjöll­um – Lokan­ir vegna viðhalds

Í gær hófst viðhaldsvinna á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði (vegnúmer 1). Á meðan vinnan stendur yfir verður brúin að mestu lokuð en opnað verður fyrir umferð á fyrirfram ákveðnum tímum, fjórum sinnum á dag. Áætlaður framkvæmdatími er 1-2 vikur. 

Við hvetjum ferðaþjónustuaðila til að upplýsa viðskiptavini sína um þessar aðstæður.

 

Opnað 4 sinnum á dag

Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð yfir brúna á eftirfarandi tímum dags:

  • 09:45 – 10:15
  • 12:00 – 13:00
  • 14:45 – 15:15
  • 16:45 – 17:15

 

Opið á nóttunni og um helgar

Brúin verður einnig opin fyrir umferð um helgar og á virkum dögum frá kl. 19:00 að kvöldi til 08:00 að morgni næsta dags.

 

Nánari upplýsingar

  • Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmu fyrirvara ef aðstæður krefjast.
  • Upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum verða sett upp við brúna.
  • Vegagerðin hvetur vegfarendur til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.
  • Auglýsing til útprentunar

Nánar á www.vegagerdin.is