Fara í efni

Beint flug frá Akureyri til Keflavíkur

Akureyri
Akureyri

Beint flug frá Akureyri til Keflavíkur er hafið en flugið tengist millilandaflugi Icelandair. Viðskiptavinir félagsins bóka flugið hjá Icelandair og innrita sig alla leið á áfangastað. Flogið verður fjórum sinnum í viku til 27. ágúst, á mánudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum og tvisvar í viku eftir það til 30. september á fimmtudögum og sunnudögum.

Skv. upplýsingum frá Icelandair er gert  ráð fyrir að um 2500 farþegar fljúgi þessa leið í sumar og að stærstur hluti þeirra, um 80%, verði erlendir ferðamenn sem taldir eru nær hrein viðbót við þá ferðamenn sem fyrir eru. Búist er að því að Danir, Bretar, Svíar og Þjóðverjar verði fjölmennastir í hópi þessara ferðamanna.

Tenging við helstu áfangastaði Icelandair
Brottför frá Akureyrarflugvelli verður klukkan jafnan kl. 14.30 og lending á Keflavíkurflugvelli 15.20. „Tímasetningin gerir það að verkum að fjölmargir áfangastaðir Icelandair liggja vel við þessu tengiflugi, til dæmis London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Amsterdam, Brussel, Stokkhólmur og Osló, auk þess sem það eru tengingar á ýmsa áfangastaði í Norður-Ameríku,“ segir í tilkynningu frá Icelandair.

Akureyri verður alþjóðlegur áfangastaður
Akureyrarflugið er bókanlegt sem hluti af flugi Icelandair til og frá Íslandi. „Það er spennandi að bæta Akureyri sem nýjum áfangastað inn í leiðakerfið okkar og tengiflugið sem fer í gegnum Keflavíkurflugvöll. Með þessum hætti erum við að opna nýja leið fyrir ferðamenn frá fjölmörgum öðrum borgum í leiðakerfi okkar til Akureyrar. Akureyri opnast í bókunarkerfum um allan heim sem áfangastaður Icelandair og við teljum okkur vera að færa Akureyri og perlur Norðurlands nær erlendum ferðamönnum og styrkja þannig undirstöður ferðaþjónustunnar á Norðurlandi,” segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í tilkynningu.