Fara í efni

Bandalag íslenskra farfugla hlýtur umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 2003

Líkt og undanfarin ár hefur Ferðamálaráðs Íslands óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna jafnframt því sem innan stofnunarinnar er fylgst með því sem ferðþjónustuaðilar eru að gera í umhverfismálum. Verðlaunin voru afhent í tengslum við ferðamálaráðstefnuna í Mývatnssveit í gær af Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra.

Stjórn Ferðamálaráðs Íslands komst að þeirri niðurstöðu að Bandalag íslenskra farfugla skyldi hljóta verðlaunin að þessu sinni. Í rökstuðningi með ákvörðuninni segir m.a. að "með tilliti til mikils og vandaðs undirbúnings að umhverfisstefnu og þeirra markvissu og víðtæku þátttöku sem er í henni, er Bandalagi íslenskra farfugla verðugur handhafi umhverfisverðalauna Ferðamálaráðs Íslands 2003."

Bandalag íslenskra farfugla
Bandalag íslenskra farfugla er aðili að alþjóðasamtökum farfuglaheimila. Meginhlutverk samtakanna er rekstur farfuglaheimila um allt land og upplýsingamiðlun í því skyni að gera fólki kleift að ferðast á hagkvæman hátt hér heima og erlendis. Alls starfa 23 gististaðir undir merkjum Bandalag íslenskra farfugla hér á landi og að auki leigja samtökin rekstur Tjaldsvæðisins í Laugardal af Reykjavíkurborg.

Umhverfisstefna samtakanna
Árið 1997 hófst undirbúningur að gerð umhverfisstefnu samtakanna með aðstoð bæði innlendra og erlendra ráðgjafa. Lagðar voru fram viðhorfskannanir fyrir gesti og 1998 tóku 8 heimili þátt í tilraunaverkefni á sviði umhverfismála. Þessi undirbúningsvinna tryggir að umhverfisstefnan er í fullu samræmi við kröfur og væntingar ferðafólks, lög og reglugerðir opinberra aðila og lög alþjóðasamtaka farfuglaheimila og Bandalag íslenskra farfugla.
Árið 1999 var umhverfisstefnan samþykkt af stjórn samtakanna og í dag starfa öll gistiheimili innan samtakanna eftir henni. Frá og með árinu 2003 eru umhverfismál hluti af gæðastöðlum farfuglaheimilanna.

Hvatning til annarra
Tilgangur verðlauna sem þessara er að hvetja ferðaþjónustuaðila til að gera sér grein fyrir mikilvægi þess að huga að þeirri auðlind sem þeir nýta og hvetja þá til ábyrgðar á eigin athöfnum. Með umhverfisstefnu sinni og almennri þátttöku í henni hérlendis hefur Bandalag íslenskra farfugla vakið verðskuldaða athygli innan alþjóðasamtaka farfuglahreyfingarinnar og var fulltrúa Bandalags íslenskra farfugla boðið að kynna hana á alþjóðlegri ráðstefnu um gæðamál sem haldin var í Austurríki nú í byrjun október.

Verðlaunagripurinn eru höggmynd sem ber heitið Harpa og er unnin af Hallsteini Sigurðssyni myndhöggvara.