Fara í efni

Bætt aðgengi - betri upplifun - Upptaka frá kynningu

Bætt aðgengi - betri upplifun - Upptaka frá kynningu

Ánægjulegt var að sjá hversu góð þátttaka var á viðburði sem Ferðamálastofa bauð ferðaþjónustuaðilum og öðrum hagaðilum á þann 21. maí í tilefni af Global Accessibility Awareness Day. Bæði var gaman að upplifa áhugann sem málefnið vakti og hversu fjölbreyttur hópur fólks tók þátt víðs vegar að um allt land. 

Upptöku af viðburðinum má nálgast á Youtube-rás Ferðamálastofu.

 

Aðgengismál frá tveimur ólíkum sjónarhornum

Á viðburðinum fengu þátttakendur innsýn í aðgengismál frá tveimur ólíkum en afar mikilvægum sjónarhornum — annars vegar frá notandanum sjálfum og hins vegar frá ferðaþjónustuaðila.

 

Shane Hryhorec

Aðalfyrirlesari var Shane Hryhorec, ástralskur áhrifavaldur, frumkvöðull og öflugur talsmaður bætts aðgengis. Shane hefur helgað líf sitt því að ryðja hindrunum úr vegi og bæta aðgengi. Í erindinu deildi hann reynslu sinni af ferðalögum um heiminn sem hjólastólanotandi; hvað virkar vel, hvað mætti gera betur og hvað skiptir raunverulega máli þegar kemur að aðgengi í ferðaþjónustu.

Shane er einnig stofnandi Push Mobility, fyrirtækis sem þróar og framleiðir hjálpartæki fyrir fólk með fötlun.

Í gegnum verkefnið Wheel Around the World og samfélagsmiðla hefur Shane náð til milljóna áhorfenda, þar sem hann varpar ljósi á bæði áskoranir og tækifæri í ferðalögum fatlaðs fólks á einlægan og lifandi hátt.

 

Vilborg Ásta Árnadóttir

Þá sagði Vilborg Ásta Árnadóttir, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri, hjá Sky Lagoon frá því hvernig hugað hefur verið að góðu aðgengi fyrir fatlaða í einu vinsælasta baðlóni landsins. Hún fjallaði m.a. um hvernig markvisst hefur verið unnið að því að hanna upplifun sem tekur mið af fjölbreyttum þörfum gesta, ásamt áskorunum og tækifærum.

 

 

Fundarstjóri var Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri.

 

Hvatning til fyrirtækja að huga að góðu aðgengi 

Viðburðurinn var hluti af átaki Ferðamálastofu til að hvetja fyrirtæki til að huga að góðu aðgengi í íslenskri ferðaþjónustu. Með okkur í samstarfi eru lykilaðilar á sviðinu; Sjálfsbjörg, ÖBÍ og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

 

Markmið viðburðarins var að veita innsýn, kveikja umræðu og styðja ferðaþjónustuaðila í að taka raunhæf skref í átt að bættu aðgengi. Aðgengi snýst ekki aðeins um að uppfylla kröfur heldur um að skapa betri upplifun. Smáar breytingar geta haft veruleg áhrif á það hvernig gestir upplifa þjónustu og við viljum því hvetja öll fyrirtæki og áfangastaði til að staldra við og velta fyrir sér: Hvað getum við gert betur?

 

Til stuðnings viljum við benda á verkefnið Gott aðgengi í ferðaþjónustu þar sem finna má leiðbeiningar, verkfæri og fræðsluefni.