Fara í efni

Austurland - Stafræn fræðsla og markaðssetning

Ferðamálastofa býður í samvinnu við Austurbrú upp á námskeið í stafrænni markaðssetningu sem ætlað er litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Farið verður í helstu atriði stafrænnar þróunnar og markaðssetningar ferðaþjónustufyrirtækja, svo sem bókunarsíður (Booking og Expedia t.d.), Google, samfélagsmiðla og heimasíður, leitarvélabestun og gerð markaðsáætlana.

Námskeiðið verður lifandi og hagnýtt og gert er ráð fyrir að þátttakendur taki með sér tölvur, bretti upp ermar og vinni markvisst á meðan á námskeiðinu stendur.

2ja daga námskeið:   27. janúar og 20.febrúar
Staðsetning:               Austurbrú, Tjarnarbraut 39a, 700 Egilsstaðir
Kennari:                      Inga Rós Antoníusdóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunnar hjá Ferðamálastofu
Tími:                            Kennt kl. 9-12 & 13-16 Verð: 22.900 (innifalið kennslugögn, kaffi/te og léttur hádegisverður)
Skráning:                    Austurbrú, Jónína Brynjólfsdóttir, jonina@austurbru.is

  • Áhersla á lítil og meðalstór fyrirtæki.
  • 10-12 þátttakendur. Kennt er í litlum hópum til þess að hægt sé að vinna markvisst á staðnum.
  • Inga Rós Antoníusdóttir veitir allar frekari upplýsingar ingaros@ferdamalastofa.is