Fara í efni

Austurland og ferðamenn framtíðarinnar

Frá Atlavík.
Frá Atlavík.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Meet the Locals og Austurbrú gangast fyrir málþingi þann 10. apríl frá kl. 9:30-17:00 á Hótel Hallormsstað. Yfirskriftin er "Austurland og ferðamenn framtíðarinnar- Samræða og samstarf í vaxandi atvinnugrein."

Kynning á ferðatengdum verkefnum og framtíðarsýn fyrir Austurland. Fulltrúar frá Austurbrú, sveitarfélögum og ferðaþjónustuaðilar kynna ferðaþjónustuverkefni, framtíðaráform og stefnu.

Dagskrá:

  • Upplifun ferðamanna - Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Austfirska Eldhúsið - Ólafur Ágústsson, matreiðslumeistari
  • Ferðaþjónusta á Norðurlandi; kyrrð, orka og töfrar - Arnheiður Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Norðurlands
  • Vöruþróun í ferðaþjónustu - Sævar Freyr Sigurðsson, Saga Travel á Akureyri
  • Leitandi markaður - Ásdís Dögg Ómarsdóttir, Artic Adventures
  • Markaðssetning áfangastaða - Davíð Samúelsson, Markaðsstofu Suðurlands
  • Ísland allt árið - Inga Hlín Pálsdóttir, Íslandsstofu
  • Hádegisverður í boði Arion banka

Pallborð og umræður, vinnustofa og samantekt. Málþingið er opið öllum áhugasömum um framtíð ferðaþjónustu á Austurlandi.

Skráningar berast á netfangið: kristbjorg@nmi.is

auglýsing