Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um styrki í Ísland allt árið ? þróunarsjóð

Þróunarsjóður
Þróunarsjóður

Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið auglýsa eftir umsóknum um styrki í Ísland allt árið – þróunarsjóð. Markmið þróunarsjóðsins er að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma Ferðaþjónustu og auka arðsemi fyrirtækja.

Annars vegar verður stutt við verkefni fyrirtækja sem lengt geta ferðamannatímann á tilteknum svæðum og hins vegar við samstarfsverkefni fyrirtækja sem vilja sameiginlega þróa þjónustu sem haft getur sömu áhrif víðar um landið.

Í umsókn þurfa að koma fram skýrar hugmyndir um þá þjónustu og upplifun sem skila eiga í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum. Verkefnin verða að koma til framkvæmda innan þriggja ára frá því að styrkur er veittur.

Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2012 og er gert ráð fyrir að styrkir verði veittir í febrúar.

Allar nánari upplýsingar er að finna á landsbankinn.is