Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum í styrki frá NATA

NATA logo
NATA logo

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í styrki frá NATA, North Atlantic Tourist Association. Um er að ræða samning Íslands, Færeyja og Grænlands um samstarf landanna þriggja í ferðamálum.

NATA tók gildi í byrjun síðasta árs og tók við af Vestnorræna ferðamálaráðinu og tvíhliða ferðamálasamningunum SAMIK og FITUR, sem verið höfðu í gildi við Grænland og Færeyjar. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta.

Hverjir geta sótt um?
Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir,  ferðir eða því um líkt. Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta.

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:

  • Menntun
    Dvöl til að kynna sér aðstæður, faglegar námsferðir, skólaferðalög, menntun á sviði ferðamála, rannsóknir o.s.frv.
  • Þróun ferða
    Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (short break) o.s.frv.
  • Samstarf þjóða í milli
    Menningartengdir viðburðir, skólaferðir, íþróttaferðir, vinabæjartengsl o.s.frv.
  • Markaðssetning og skilgreining ferðamennsku

Leita má eftir stuðningi við verkefni, ferðir eða starfsemi sem fer fram fyrir árslok 2008. Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má hér neðar á síðunni. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku og sendast til:

NATA c/o
Ferðamálastofa
Lækjargata 3,
101 Reykjavík

Lokafrestur til að senda umsóknir er til og með 7. mars 2008
-Hægrismellið á tenglana hér fyrir neðan og veljið "Save Target As" til að vista umsóknareyðublöðin á eigin tölvu.