Fara í efni

Auglýst eftir styrkumsóknum í norrænu menningar- og listaáætlunina

Menningar- og listaáætlunin, sem er liður í norrænu samstarfi, veitir styrki til verkefna á sviði allra menningar- og listgreina. Áætlunin veitir styrki fagfólki og áhugafólki sem starfar að listum og menningarmálum.

Áætlunin skiptist í tvo hluta.

Framleiðslumiðuð starfsemi og miðlun
Styrkur er ætlaður í verkefni sem leggja áherslu á framleiðslu menningar og listar og skapandi starf. Lykilorðið er nýsköpun en í því felst þróun og prófun nýrra hugmynda, hugtaka og ferla.


Hæfnisþróun, gagnrýni og þekkingarmiðlun
Styrkur er ætlaður í verkefni sem leggja áherslu á hæfnisþróun og þekkingarmiðlun þeirra sem starfa að menningu og listum. Um getur t.d.verið að ræða; ráðstefnur, námskeið og vinnubúðir (workshop).


Menningar- og listaáætlunin hefur 2.012.215 evra (14.991.000 dsk) til heildarráðstöfunar á árinu 2010.

http://www.kulturkontaktnord.org/lang-is/menningaraaetlanir/lista-og-menningaraaetlunin