Fara í efni

Auglýst eftir samstarfsaðilum að markaðs- og kynningarmálum erlendis

MennvidFludir
MennvidFludir

Eins og fram hefur komið verður á þessu ári varið meiri fjármunum á vegum stjórnvalda til markaðs- og kynningarmála í ferðaþjónustu en áður hefur verið gert á einu ári. Tilgangurinn er að gera þennan þátt enn umfangsmeiri en verið hefur. Ákveðið var að bjóða aðilum að ganga til samstarfs við Ferðamálaráð Íslands í markaðs- og kynningarmálum, innanlands og erlendis og hefur nú verið auglýst eftir samstarfsaðilum á fjórum erlendum markaðssvæðum.

Grundvöllur samstarfsins er að framlag samstarfsaðila verði a.m.k. jafnt framlagi Ferðamálaráðs til umræddra verkefna. Alls er um að ræða 202 milljónir króna frá stjórnvöldum þannig að gera má ráð fyrir að a.m.k. tvöfaldri þeirri upphæð verði varið í verkefnin þegar framlag samstarfsaðila bætist við. Í grundvallaratriðum er fjármununum skipt þannig að á hverju markaðssvæði eru til ráðstöfunar annars vegar 40 milljónir króna sem skiptast á tvö 20 milljóna króna verkefni og hins vegar er hægt að sækja um í nokkur minni verkefni þar sem lágmarksframlag hvers samstarfsaðila er 1 milljón króna. Nánari skipting á markaðssvæðin með eftirfarandi hætti.

Norður-Ameríka
Til ráðstöfunar eru annars vegar 40 milljónir króna þar sem lágmarksframlag verði 20 milljónir króna í hvort verkefni. Hins vegar eru til ráðstöfunar 8 milljónir króna þar sem lágmarksframlag hvers samstarfsaðila er 1 milljón króna.

Bretlandseyjar
Til ráðstöfunar eru annars vegar 40 milljónir króna þar sem lágmarksframlag verði 20 milljónir króna í hvort verkefni. Hins vegar eru til ráðstöfunar 6 milljónir króna þar sem lágmarksframlag hvers samstarfsaðila er 1 milljón króna.

Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland
Til ráðstöfunar eru annars vegar 40 milljónir króna þar sem lágmarksframlag verði 20 milljónir króna í hvort verkefni. Hins vegar eru til ráðstöfunar 10 milljónir króna þar sem lágmarksframlag hvers samstarfsaðila er 1 milljón króna.

Meginland Evrópu
Til ráðstöfunar eru annars vegar 40 milljónir króna þar sem lágmarksframlag verði 20 milljónir króna í hvort verkefni. Hins vegar eru til ráðstöfunar 18 milljónir króna þar sem lágmarksframlag hvers samstarfsaðila er 1 milljón króna.

Hverjir geta sótt um?
Þegar rætt er um samstarfsaðila getur það átt við fyrirtæki, sveitarfélög, einstaklinga eða samstarfshópa þeirra, um ákveðin markaðs- og kynningarverkefni. Með umsóknum skal fylgja útfærsla á viðkomandi kynningu og fjárhagsáætlun. Ekki verður um að ræða styrki vegna verkefna heldur fjármagn til sameiginlegra verkefna með Ferðamálaráði Íslands. Greiðsla Ferðamálaráðs mun fara fram að lokinni umræddri kynningu eða í samræmi við greiðslur vegna hennar. Umrædd verkefni skulu unnin á tímabilinu 1. mars 2003-29. febrúar 2004.

Eftir hverju er verið að sækjast?
Við afgreiðslu umsókna verður m.a. tekið tillit til eftirfarandi þátta.

  • Um verði að ræða almenn kynningar- /markaðsverkefni sem hvetji neytendur til Íslandsferða.
  • Sérstaklega verður litið til verkefna sem styrkja ferðaþjónustu um allt land á heilsársgrunni
  • Litið verður til útbreiðslu þeirra fjölmiðla sem áætlað er að nýta í umræddri kynningu.

Umsóknarfrestur
Þeir sem áhuga hafa á samstarfi við Ferðamálaráð um þessi verkefni sendi umsóknir sínar til skrifstofu Ferðamálaráðs að Lækjargötu 3, 101, Reykjavík, til og með 28. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Magnús Oddsson, ferðamálastjóri. Síminn er 535-5500.

Auglýst verður eftir samstarfsaðilum vegna innlendrar kynningar síðar.