Fara í efni

Atvinnuvegaráðherra úthlutar til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða


Frá Vestmannaeyjum. Hæsti styrkurinn í ár  er vegna lagningu stíga, uppsetningu trappa, útsýnispalla, upplýsingaskilti og leiðakerfi á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar, Sjónarhorn flakkarans.

 

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í dag til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðsvegar um landið.

 

Sérstök áhersla var lögð á öryggi á ferðamannastöðum við úthlutun að þessu sinni og tók gæðamat sjóðsins mið af þeirri áherslu.

 

„Öryggi á ferðamannastöðum á Íslandi er ekki einungis á ábyrgð stjórnvalda, heldur sameiginlegt verkefni okkar allra sem vinnum að málefnum ferðaþjónustunnar“ sagði atvinnuvegaráðherra. „Stórbrotin náttúra Íslands heillar vissulega en hún getur líka verið óvægin. Eitt af hlutverkum Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er því að tryggja öryggi gesta“.

 

Hæsti styrkur úr sjóðnum í ár fer til Vestmannaeyjabæjar vegna gerð göngustíga á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer‘s Perspective). Meginmarkmið verkefnisins er að tryggja öryggi ferðamanna og vernda viðkvæma náttúru svæðisins en um leið minnast eldgossins á Heimaey 1973.

 

Markmið Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.

 

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk úr sjóðnum í ár:

 

Áhugamannafélög

  • Ferðafélag Fljótsdalshéraðs - Göngubrú yfir Breiðuvík a Víknaslóðum: kr. 3.600.000
  • Ferðafélag Íslands – Brú yfir Krossá: kr. 2.500.000
  • Ferðafélag Íslands - Laugavegur - öryggismál - náttúruvernd og sjálfbærnistefna: 235.000
  • Félag Látramanna - Varnagarður og viðhald a göngu- og vegaslóða á Látrum í Atlavík: kr. 11.483.749

Fyrirtæki

  • Reykjadalsskálinn slf. – Reykjadalsgönguleiðin: kr. 40.353.600

Landeigandi/landeigendafélög

  • Landeigendur Voga ehf.- Hönnun innviða og gera stíga og brúa yfir flekaskilin við Grjótagá í Mývatnssveit: kr. 43.074.708
  • Marteinn Óli Aðalsteinsson - Bætt öryggi og nátturuvernd við austanvert Stuðlagil: kr. 35.000.000
  • Marteinn Óli Aðalsteinsson - Bætt aðgengi niður að Jöklu við austanvert Stuðlagil: kr. 35.522.011

Sveitarfélög

  • Akureyrarbær - Grímsey - Lagfæring gönguleiðar í Grímsey: kr. 10.636.605
  • Fjarðabyggð - Bleiksárfoss 2. Áfangi: kr. 39.368.000
  • Fljótsdalshreppur- Fossahringurinn - Endurbætur og upplýsingagjöf: kr. 15.680.000
  • Hvalfjarðarsveit - Glymur í botni Hvalfjarðar - áframhaldandi vernd og uppbygging: kr. 26.450.000
  • Múlaþing - Baugur BjóIfs - bílastæði og gönguleið: kr. 29.000.000
  • Múlaþing - Endurbætur á gönguleið við Fardagafoss: kr. 18.000.000
  • Rángarþing ytri - Sigöldugljúfur – öryggisinnviðir: kr. 28.000.000
  • Sveitarfélagið Stykkishólmur – Fjöregg: kr. 35.000.000
  • Vestmannaeyjar - Tröppur/göngustígur á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer's perspective): kr. 107.478.803
  • Vesturbyggð - Útsýnispallur á Strengfell: kr. 3.217.524

 

Kortasjá með yfrliti styrkja

Á Kortasjá framkvæmdasjóðs má kynna sér nánar þau verkefni sem fengu úthlutun í ár sem og yfirlit allra styrkja frá því að sjóðurinn úthlutaði fyrst árið 2012.

 

Mynd: Juliette Herlem on Unsplash