Atvikavaktin komin vel af stað - Yfir hundrað þátttakendur á fyrstu örnámskeiðum
Atvikavakt Ferðamálastofu hefur farið vel af stað frá því að hún var formlega opnuð 16. júní síðastliðinn. Mikill áhugi hefur verið á kerfinu meðal ferðaþjónustufyrirtækja og starfsfólks þeirra og fyrstu vikurnar hafa einkennst af góðri þátttöku í fræðslu og virkum umræðum um öryggismál.
Góð þátttaka á námskeiðum
Frá opnun hafa verið haldin fjögur örnámskeið þar sem farið er yfir notkun Atvikavaktarinnar og hvernig fyrirtæki geta nýtt kerfið í sínu daglega starfi. Alls hafa 109 þátttakendur skráð sig á námskeiðin og komið úr fjölbreyttum greinum ferðaþjónustunnar.
Kennsla á ensku og kvöldnámskeið
Til að mæta þörfum atvinnugreinarinnar hefur Ferðamálastofa jafnframt hafið kennslu á ensku sem hefur aukið aðgengi að fræðslunni. Einnig bárust óskir frá VR um kvöldnámskeið og verða þau tekin upp í ágúst.
Fyrirtækin tekið vel við sér
Frá opnun hafa 24 skráningar borist í Atvikavaktina. Skráningarnar sýna að fyrirtæki eru farin að nýta kerfið sem heldur utan um slys, óhöpp og næratvik í ferðaþjónustu á einfaldan og samræmdan hátt. Með hverri skráningu verður til verðmæt þekking sem nýtist til að efla öryggi, gæði og fagmennsku í íslenskri ferðaþjónustu.
Endurgjöf er mikilvæg
Á námskeiðunum hafa skapast góðar umræður þar sem þátttakendur hafa komið með ábendingar og spurningar sem nýtast áfram við þróun kerfisins og fræðsluefnis. Slík endurgjöf er mikilvæg til að tryggja að Atvikavaktin þróist áfram í takt við þarfir atvinnugreinarinnar.
Virðið eykst með fleiri notendum
Þótt verkefnið hafi farið vel af stað eru tækifæri til að efla notkun Atvikavaktarinnar enn frekar. Virði kerfisins eykst eftir því sem fleiri skráningar berast og þekkingargrunnurinn verður öflugri. Ferðamálastofa hvetur því öll ferðaþjónustufyrirtæki til að skrá sig í Atvikavaktina og í framhaldinu verður starfsfólk frá Áhættustjórnun ehf. í sambandi varðandi innskráningu og nánari leiðbeiningar um næstu skref.
Hvernig fæ ég aðgang?
Fyrirtæki skrá sig í Atvikavaktina með því að fylla út formið hér að neðan. Í framhaldinu verður starfsfólk frá Áhættustjórnun ehf. í sambandi varðandi innskráningu og nánari leiðbeiningar um næstu skref.