Fara í efni

Átak gegn svartri atvinnustarfsemi

leggur þú þitt af mörkumSamtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Ríkisskattstjóri hafa í sumar tekið höndum saman á nýjan leik og ráðist í sérstakt átak til þess að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli, segir í frétt frá SA.

Fulltrúar aðilanna þriggja heimsækja vinnustaði, kanna aðstæður, veita ráðgjöf og fræðslu um viðeigandi reglur og lagaramma og hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að gera nauðsynlegar úrbætur ef þurfa þykir. Yfirskrift átaksins er Leggur þú þitt af mörkum?

Svört atvinnustarfsemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum eru skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni. Hún eykur skattbyrði þeirra sem fara að settum reglum og kemur í veg fyrir að fyrirtæki geti keppt á jafnréttisgrunni. Það er ósanngjarnt að láta aðra borga reikningana sína.

Athyglinni verður sérstaklega beint að litlum og meðalstórum fyrirtækjum í ýmsum atvinnugreinum og nauðsynlegra úrbóta og leiðréttingar gjalda krafist þar sem við á. SA, ASÍ og RSK hvetja forráðamenn atvinnurekstrar í landinu til að hafa tekjuskráningu sína í lagi og alla starfsmenn skráða. Jafnframt að nota vinnuskilríki þar sem það á við og fara að lögum um færslu bókhalds og skil á staðgreiðslu, virðisaukaskatti og öðrum lögboðnum gjöldum.