Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu – Iceland Advice ehf.

Ferðaskrifstofuleyfi Iceland Advice ehf., kt. 490316-1240, Flatahrauni 31, 220 Hafnarfirði, hefur verið fellt úr gildi þar sem ferðaskrifstofurekstri hefur verið hætt. Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld vegna sölu pakkaferðar og samtengdrar ferðatilhögunar samkvæmt VII. kafla laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

Samkvæmt 25. gr. er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar.
Með vísan til 27. gr. er hér með skorað á þá viðskiptavini fyrirtækisins, sem telja sig eiga kröfu á hendur því vegna kaupa á pakkaferð eða samtengdri ferðatilhögun að leggja fram skriflegar kröfulýsingar í tryggingarféð fyrir 30. desember nk.

Kröfulýsingu skal senda inn í rafrænt í gegnum þjónustugátt á vefsíðu Ferðamálastofu, en þar er að finna form til að skrá kröfulýsingu. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 5500, á netspjalli stofnunarinnar eða á netfanginu mail@ferdamalastofa.is.

F. h. Ferðamálastofu,
Nanna Björnsdóttir, lögfræðingur