Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Gaman ehf. (Gaman ferðir)

Ferðaskrifstofuleyfi Gaman ehf. (Gaman ferðir), kt. 430212-1090, Bæjarhrauni 14, 220 Hafnarfirði, hefur verið fellt úr gildi þar sem rekstri hefur verið hætt.

Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld vegna sölu pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar samkvæmt VII. kafla laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Tryggingunni er ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar.


Með vísan til 27. gr. laganna er hér með skorað á þá viðskiptavini Gaman ferða ehf., sem telja sig eiga kröfu á hendur fyrirtækinu vegna kaupa á pakkaferð eða samtengdri ferðatilhögun að leggja fram skriflega kröfulýsingu í tryggingarféð fyrir 20. júní nk.

Kröfulýsingu skal senda inn rafrænt í gegnum þjónustugátt á heimasíðu Ferðamálastofu, en þar er einnig að finna eyðublað fyrir kröfulýsingu. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 5500, á netspjalli stofnunarinnar eða á netfanginu mail@ferdamalastofa.is. 

F. h. Ferðamálastofu,
Helena Þ. Karlsdóttir,forstöðumaður stjórnsýslusviðs