Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu - Ferðaskrifstofa Austurlands ehf.

Ferðaskrifstofuleyfi Ferðaskrifstofu Austurlands ehf., með skráð hjáheiti FA Travel, kt. 640299-2079, Kaupvangi 6, Egilsstöðum, hefur verið fellt úr gildi vegna rekstrarstöðvunar ferðaskrifstofunnar.

Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld vegna sölu alferða samkvæmt V. kafla laga um skipan ferðamála nr. 73/2005.

Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laganna er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna alferðar, sem enn er ófarin og til heimflutnings viðskiptavinar úr alferð. Tryggingin nær einnig til þess að gera viðskiptavini kleift að ljúka alferð í samræmi við upphaflega áætlun hennar.

Með vísan til 19. gr. laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála er hér með skorað á þá viðskiptavini fyrirtækisins, sem telja sig eiga kröfu á hendur því vegna kaupa á alferð, að leggja fram skriflegar kröfulýsingar í tryggingarféð innan 60 daga frá birtingu áskorunar þessarar.

Kröfulýsingum skal beint til Ferðamálastofu, Hafnarstræti 91, 600 Akureyri. Með henni skulu fylgja nauðsynleg sönnunargögn um kröfuna, svo sem farseðlar og kvittanir.

F. h. Ferðamálastofu,
Nanna Björnsdóttir lögfræðingur.
nanna@ferdamalastofa.is.
Sími 535 5507