Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu

lógó fms
lógó fms

Ferðaskrifstofuleyfi Vesturheims sf., kt. 660706-0110, Engihjalla 25, 200 Kópavogi, hefur verið fellt úr gildi þar sem félaginu hefur nú verið slitið.

Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld samkvæmt V. kafla laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála. Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laganna er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna alferðar, sem enn er ófarin og til heimflutnings viðskiptavinar úr alferð. Tryggingin nær einnig til þess að gera viðskiptavini kleift að ljúka alferð í samræmi við upphaflega áætlun hennar.

Með vísan til 19. gr. laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála er hér með skorað á viðskiptavini Vesturheims sf. að leggja fram skriflegar kröfulýsingar í tryggingarféð innan 60 daga frá birtingu áskorunar þessarar.

Kröfulýsingum skal beint til Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600 Akureyri. Með henni skulu fylgja nauðsynleg sönnunargögn um kröfuna, svo sem farseðlar og kvittanir.
Kröfufresturinn er til 3. maí 2012.


Virðingarfyllst,
F.h. Ferðamálastofu
Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur
helena@ferdamalastofa.is
Sími: 535 5500