Ársskýrsla Hæfniseturs Ferðaþjónustunnar 2025 er komin út
02.06.2026
Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar fyrir árið 2025 er komin út. Í henni er farið yfir starfið og helstu verkefni en sem fyrr var unnið markvisst að uppbyggingu lausna sem styðja við hæfni, fagmennsku og gæði í íslenskri ferðaþjónustu.
Hæfnisetrið starfar samkvæmt þjónustusamningi við atvinnuvegaráðuneytið og er vistað hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Ferðamálastofa á sæti í stýrihópi Hæfnisetursins, Helen Hannesdóttur, forstöðumann þróunar-og þjónustu. Hún er meðal þeirra sem ritar ávarp í skýrsluna en þar reifar hún tengingu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar og upplifunarhagkerfisins.