Fara í efni

Arnar Már kjörinn varaforseti Ferðamálaráðs Evrópu

Forseti, varaforsetar og framkvæmdastjóri ETC. Talið frá vinstri, Arnar Már Ólafsson, Ana Tripković …
Forseti, varaforsetar og framkvæmdastjóri ETC. Talið frá vinstri, Arnar Már Ólafsson, Ana Tripković frá Svartfjallalandi, Miguel Sanz frá Spáni, Lidija Bajarūnienė frá Litháen og Eduardo Santander, framkvæmdastjóri ETC.

Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri var kjörinn varaforseti Ferðamálaráðs Evrópu, ETC, á aðalfundi sambandsins sem nú fer fram í Svartfjallalandi. Þrír voru í kjöri og fékk Arnar flest atvæði.

Á fundinum koma saman leiðtogar ferðamálaráða 32ja Evrópulanda til að ræða framtíð evrópskrar ferðaþjónustu. Miguel Sanz, ferðamálastjóri Spánar, var endurkjörinn forseti ETC.

 

Í frétt frá ETC er farið yfir að Arnar Már hefur nærri 40 ára reynslu af stefnumótun í ferðaþjónustu, áfangastaðaþróun, markaðsmálum og rannsóknum. Í ávarpi sínu á fundinum lagði hann áherslu á að framtíð evrópskrar ferðaþjónustu byggðist á því að samræma vöxt og vernd náttúru- og menningarverðmæta, styðja við heimamenn og stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna yfir árið. Hann sagði jafnframt að ETC gegndi mikilvægu hlutverki í að styðja þessa þróun með auknu samstarfi, miðlun þekkingar og nánari samvinnu evrópskra áfangastaða.

 

Yfirskrift fundarins í Svartfjallalandi er: „Breytilegt hlutverk vörumerkingar áfangastaða“ og er til umræðu hvernig ferðamannastaðir geti styrkt stöðu sína á stafrænum markaði þar sem samkeppnin harðnar stöðugt, byggt upp sterkari ímynd og þróað sjálfbæra ferðaþjónustu til framtíðar.

 

Ísland meðal stofnaðila

ETC eru nærri 80 ára gömul samtök en Ísland var meðal þátttakenda á stofnfundinum í Stalheim í Noregi árið 1948. Aðild eiga ferðamálaráð Evrópulanda auk fyrirtækja og samtaka í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Má þar nefna ferðaþjónustusamsteypur eins og Expedia, Airbnb, Booking, Hilton og Amadeus.