Fara í efni

Almyrkvi á sólu - Könnun meðal bílaleiga og þeirra sem sigla með farþega

Almyrkvi á sólu - Könnun meðal bílaleiga og þeirra sem sigla með farþega

Ferðamálastofa, í samstarfi við Almannavarnir, vinnur að undirbúningi og skipulagningu aðgerða í tengslum við almyrkva sem verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst næstkomandi. Liður í því er að meta álag á samgöngur og ferðamannainnviði. Þar á meðal framboð og nýtingu bílaleigubíla og framboð, burðargetu og bókunarstöðu farþegaskipa og báta.

 

Óskað eftir þátttöku fyrirtækja

Til þess að geta lagt raunhæft og ábyrgt mat á stöðuna óskaði Ferðamálastofa á dögunum eftir þátttöku fyrirtækja í könnun um þetta efni og verða svörin eingöngu nýtt í greiningar- og skipulagsvinnu vegna almyrkvans á vegum Ferðamálastofu og Almannavarna. Um leið og við þökkum þeim sem þegar hafa svarað þá viljum við hvetja aðra til að taka nokkrar mínútur í að klára könnunina.

 

Nánari upplýsingar

Ef einhver hefur ekki fengið könnunina er hægt að hafa samband við netfangið fréttir@ferdamalastofa.is