Fara í efni

Aldrei fleiri á Icelandair Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni

Mid Atlantic

Hin árlega ferðakaupstefnan Icelandair Mid-Atlantic verður sett í Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. Hún er nú haldin í 23. skipti og hefur aldrei verið fjölmennari. Sjálf kaupstefnan fer fram í Laugardalshöllinni og stendur fram á sunnudag.

Koma víða að

Kaupstefnan er haldin á vegum Icelandair til þess að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferðamannastraum til Íslands, og hefur alla tíð byggst á leiðarkerfi Icelandair. Fulltrúar á Icelandair Mid-Atlantic eru nú tæplega 800 og af þeim koma um 460 frá 20 löndum sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku og einnig frá fjarlægari mörkuðum. Alls eru 252 sýningarbásar settir upp í Laugardalshöllinni og í þeim munu fara fram um sex þúsund bókaðir fundir milli viðskiptaaðila. Á annað hundrað íslensk ferðaþjónustufyrirtæki víðs vegar að af landinu eru meðal þátttakenda og nýta þetta tækifæri til að kynna vöru sína og þjónustu.

Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja og að auki taka þátt opinber ferðamálaráð ýmissa þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku og Evrópu.

Fulltrúar fjölmiðla eru velkomnir á setninguna á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld, fimmtudagskvöld 5. febrúar, klukkan 19.00. Einnig er gott tækifæri fyrir fjölmiðla að kynna sér kaupstefnuna á föstudag kl 14.00. Þá mun ráðherra ferðamála og ýmsir helstu forystumenn ferðaþjónustunnar vera á staðnum í um klukkustund, kynna sér efni hennar og ræða við þátttakendur.