Fara í efni

Áframhaldandi uppbygging um allt land

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamá…
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra kynntu úthlutun úr Landsáætlun og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í dag.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tilkynntu í dag um úthlutun til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á öðrum ferðamannastöðum vítt og breitt um landið. Þetta er í annað sinn sem kynnt er sameiginlega um úthlutun úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

3,5 milljarðar á þremur árum

Saman tilkynntu ráðherrarnir um úthlutun á rúmum 3,5 milljörðum króna á næstu þremur árum. Á sama tíma er áætlað að verja 1,3 milljörðum króna sérstaklega til landvörslu. Markmiðið er halda áfram þeirri miklu uppbyggingu innviða sem hafin er til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum, sem og uppbyggingar ferðamannastaða.

Víða orðin mikil uppbygging

Sem fyrr segir er þetta annað árið í röð sem kynnt er sameiginlega um úthlutun úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Frá því í fyrra hafa innviðir verið byggðir upp á fjölmörgum stöðum um allt land. Má þar nefna umfangsmikla uppbyggingu við Dynjanda, lagningu stíga í Þingvallahrauni, viðgerðir við Rútshelli undir Eyjafjöllum og markvissa uppbyggingu við Stuðlagil í Jökuldal sem óvænt hefur orðið vinsæll ferðamannastaður.

Rúmlega hálfur milljarður frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, sem er í vörslu og umsjón Ferðamálastofu, úthlutar árlega og styrkir staði í eigu eða umsjón einkaaðila og sveitarfélaga. Að þessu sinni eru veittir styrkir til 40 verkefna og nemur heildarstyrkupphæðin alls 505 milljónum króna. Hæsti styrkurinn fer til innviðauppbyggingar við Goðafoss sem er nú kominn á lokastig eftir markvisst uppbyggingarstarf á undanförnum árum. Önnur verkefni sem fá hærri en 30 milljóna króna styrki eru Breiðin á Akranesi, Laufskálavarða í Álftaveri, Reykjadalur og Hveradalir í Ölfusi.

Þrír milljarðar á þremur árum

Gert er ráð fyrir ríflega þriggja milljarða framlagi til þriggja ára verkefnaáætlunar Landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2019-2021. Þar með bætist rúmur milljarður króna við þá áætlun sem kynnt var í fyrra. Í áætluninni nú er ekki einungis horft til stakra staði í náttúrunni heldur lögð áhersla á heildræna nálgun í gegnum svæðisheildir og skilgreindar leiðir sem liggja á milli staða. Hvítserkur við Vatnsnes er dæmi um stað þar sem bæta á öryggi gesta og aðgengi niður í fjöruna. Bætt aðgengi við þrjá manngerða hella við Ægissíðu á bökkum Ytri-Rangár er dæmi um svæðisheild. Þá er áætlað að ráðast í fyrsta áfanga hjólaleiðar við Jökulsárgljúfur sem liggur frá Ásbyrgi í átt að Dettifossi.

1,3 milljarðar í landvörslu

Auk þeirra ráðstafana sem gerðar eru með úthlutun Landsáætlunar og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er áætlað að verja um 1,3 milljörðum króna sérstaklega til landvörslu á næstu þremur árum. Þetta er gert til að tryggja ráðningu heilsársstarfsmanna sem og mönnun á háannatíma á fjölsóttum stöðum og friðlýstum svæðum.