Fara í efni

Áformað að stofna Landssamtök hátíða og menningaviðburða

Fiskidagurinn
Fiskidagurinn

Þann 28. apríl næstkomandi hefur verið boðað til stofnfundar Landssamtaka hátíða og menningarviðburða. Verður fundurinn haldinn í Ketilhúsinu á Akureyri.

Í fréttatilkynningu kemur fram að lengi hafi verið rætt um að þeir sem standa að og skipuleggja reglulegar hátíðir og viðburði víðsvegar um landið, gætu haft gagn að meira samstarfi og því að vita hver af öðrum.  Í ljósi umræðunnar hefur nú hópur fólks lagst yfir málið og komist að niðurstöðu um að rétt sé að stofna Landssamtök hátíða og menningarviðburða.

Margar góðar ástæður eru fyrir hugmyndinni, segir í tilkynningunni, og þessar meðal annars:

? Standa vörð um sameiginlega hagsmuni
? Hætta einyrkju í faginu og vinna saman á landsvísu
? Miðla þekkingu, reynslu og upplýsingum
? Skipuleggja sameiginlegar ráðstefnur og námskeið
? Kortleggja menningarviðburði (-hátíðir) á Íslandi
? Setja saman viðburðakeðjur
? Eiga samstarf við Menntamálaráðuneytið með samræmdum hætti

Undirbúningshópurinn er nú um það bil að ljúka fyrstu skrefum s.s. tillögum að lögum samtakanna og skipulagningu stofnfundar.

Dagskrá föstudagsins 28. apríl:

08:45 Setning og kynning
09:00 Fyrirlestur Johan Morman framkvæmdastjóri Rotterdam-Festival og stjórnarmeðlimur í IFEA (Evrópusamtökum hátíða og menningaviðburða)
10:00 Kaffihlé
10:20 Vinnuhópar móta markmið samtakana undir leiðsögn Sævars Kristinssonar hjá Netspor
12:30 Hádegishlé
13:30 Vinnuhópar/umræður
14:30 Kaffihlé
15.00 Samantekt
15.30 Stofnun samtakanna og formleg aðalfundarstörf

Þátttökugjald kr. 3200 innifalið í því er matur og annar fundarkostnaður.

Sigrún Björnsdóttur hjá Akureyrarbæ tekur á móti skráningum í síma 460 1010 eða í netfangið thjonustuanddyri@akureyri.is.  Skráningum lýkur: þriðjudaginn 26. apríl.
 
Stofnfundurinn er styrktur af Menntamálaráðuneytinu, Akureyrarbæ, Höfuðborgarstofu, Vaxtarsamningi Eyjafjarðar, Menningarráði Austurlands og Ísafjarðarbæ.

Hótel KEA er með tilboð á gistingu fyrir gesti fundarins.