Fara í efni

Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálastofu og kynning á umhverfisviðmiðum Vakans

Umhverfisverðlaunagripur
Umhverfisverðlaunagripur

Þann 15. desember næstkomandi  kl 15 mun Katrín Júlíusdóttir ferðamálaráðherra afhenda umhverfisverðlaun Ferðamálastofu á Hótel Natura (Loftleiðir). Við sama tækifæri verður umhverfisviðmiðum nýja gæða- og umhverfisverkefnisins Vakans einnig hleypt af stokkunum. Af þessu tilefni býður Ferðamálastofa samstarfsfélögum í ferðaþjónustunni til jólasamverustundar.

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Auglýst var eftir tilnefningum í september sl. og bárust margar góðar ábendingar. Í fyrra fengu farfuglaheimilin í Reykjavík verðlaunin.

Gæða- og umhverfiskerfið Vakinn
Ferðamálastofa, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands hafa um nokkurt skeið unnið að samræmdu gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu. Kerfið nefnist Vakinn og verður innleitt á komandi ári. Meginmarkmið kerfisins er að auka og efla gæði í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja hér á landi.

Fyrsti hluti verkefnisins verður formlega opnaður á fundinum en það eru umhverfisviðmið verkefnisins. 

Dagskrá:

  • Ávarp
    – Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
  • Kynning á umhverfisviðmiðum Vakans 
    - Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður hjá Ferðamálastofu
  • Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálastofu
    – Katrín Júlíusdóttir ferðamálaráðherra

*********
Boðið verður upp á léttar veitingar með jólaívafi í lokin.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið skraning@ferdamalastofa.is   fyrir lok dags þann 14. desember næstkomandi.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest!

Með kveðju,
Starfsfólk Ferðamálastofu