Fara í efni

Afgreiðsla umsókna um styrki til úrbóta í umhverfismálum

Lækur
Lækur

Alls bárust Ferðamálastofu 131 umsókn um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum á yfirstandandi ári en auglýst var eftir umsóknum um styrki í desember síðastliðnum. Umsóknirnar voru afgreiddar af starfsfólki Ferðamálastofu og hlutu 62 verkefni styrk að þessu sinni.

Til úthlutunar voru um 48 milljónir króna sem skiptast í fjóra flokka. Við úthlutun að þessu sinni var sérstaklega horft til úrbóta í aðgengismálum á áninga- og útivistarstöðum. Umsóknir hljóðuðu uppá samtals 217.822.500- krónur.

Minni verkefni
Í flokknum minni verkefni gátu styrkir að hámarki numið 500 þúsund krónum. Alls bárust 75 umsóknir en 38 aðilar fengu styrk, samtals að upphæð 10.700.000. Af því leiðir að mörgum verðugum verkefnum varð að hafna að þessu sinni. Þetta er sama reynsla og fengist hefur á undangengnum árum þar sem fjárhæð umsókna hefur verið margföld sú upphæð sem verið hefur til ráðstöfunar.

Stærri verkefni á fjölsóttum ferðamannastöðum
Í flokkinn stærri verkefni á fjölsóttum ferðamannastöðum bárust 21 umsóknir og hlutu 9 verkefni styrk, samtals að upphæð 17.100.000 krónur.

Uppbygging á nýjum svæðum
Í þriðja flokkinn, uppbygging á nýjum svæðum, bárust 35 umsóknir. Úthlutað var 10.900.000- krónum sem skiptast á 9 verkefni.

Aðgengi fyrir alla
Í fjórða flokkinn aðgengi fyrir alla voru valin verkefni sem sérstaklega miða að því að bæta aðgengi að útivistarstöðum með tilliti til aðgengis hreyfihamlaðra. Sex verkefni fá styrk til þessara verkefna að upphæð 9.200.000-. Að auki má segja að um 15 verkefni, úr hinum flokkunum, sem hlutu styrki stuðli að einhverju leiti að bættu aðgegni.

Náttúran í forgangi
Til viðmunar við úthlutun er stuðst við reglur um forgangsröðun styrkja sem fylgt hefur verið síðustu ár. Mikilvægi verkefna er vegið eftir því hver áhrif framkvæmdarinnar eru á náttúru og umhverfi. Í meginatriðum er flokkunin eftirfarandi: 
1. Náttúruvernd
2. Upplýsingar og öryggismál
3. Áningarstaðir
4. Annað

Verkefni sem stuðla að náttúruvernd eru því forgangsverkefni. Einnig er reynt að fylgja eftir því opinbera markmiði sem fram kemur í Ferðamálaáætlun 2006 -2015 að uppbygging ferðaþjónustunnar skuli taka mið af sjálfbærri þróun í samfélaginu.
Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi Ferðamálastofu, segir að heldur færri umsóknir hafi verið í ár og muni þá elst um að færri eru að ?kasta? inn umsóknum á síðustu stundu, oft á tíðum ófullkomnum og lítt úthugsuðum hugmyndum. Umsóknarferlið hafi gengið nokkuð vel fyrir sig í ár og greinilegt að undirbúningur verkefna batnar með hverju árinu "Það er ljóst að mörg verðug verkefni verða að bíða að þessu sinni og vissulega er alltaf erfitt að geta ekki orðið við góðum umsóknum," segir Valur.

Minni styrkir:
Sveitarfélag / svæði Verkefni Umsækjendur  Styrkur
Ýmsir staðir Hreinsun strandlengjunnar Veraldarvinir

400.000   

Borgarfjörður eystri / Víknaslóð Göngukort um Víknaslóð Ferðamálahópurinn á Borgarfirði 500.000   
Seyðisfjörður Göngubrú yfir Vestdalsá Gönguklúbbur Seyðisfjarðar 300.000   
Seyðisfjörður / Skálanes Öryggisúrbætur á bjargbrún Skálanessetur ehf.

250.000   

Hérað / Lagarfljót Upplýsingaskilti um Lagarfljótsorminn Omsskrínið  200.000   
Hérað / Fljótsdalur Merking gönguleiða í Fljótsdal Ferðamálanefnd Fljótsdalshrepps 250.000   
Djúpivogur / Papey Endurbætur á lendingaaðstöðu Papeyjarferðir ehf. 500.000   
Álftafjörður / Lón Söguskilti - Þvottá og Bæ í Lóni Gísli Sv. Árnason 250.000   
Hornafjörður / Lónsöræfi Salerni á Illakambi Ferðafélag A - Skaftafellssýslu 200.000   
Hornafjörður / Sultartungnagil Upplýsinga- og varðúðarskilti Ís og Ævintýri ehf. 

250.000   

Húnaþing vestra / Miðfjörður Göngustígar -Ásdísarlundur/Króksstaðakatlar Kvenfélagið Iðja

150.000   

Dalvíkurbyggð / Árskógsströnd Aðgengi að sögustað  Sveinn Jónsson 200.000   
Eyjafjörður / Hrísey Göngustígar um Hrísey Markaðsráð Hríseyjar 250.000   
Kjósahreppur Uppl. göngu- og reiðleiðaskilti af Kjósahreppi Kjósahreppur 250.000   
Reykjavík / Viðey Hvíldarsvæði við gönguleiðir Reykjavíkurborg 400.000   
Flóahreppur Fræðsluskilti við Þjórsárver Félagsheimilið Þjórsárver 150.000   
Flóahreppur Merking gönguleiðar að helli við Haug Atv.og ferðam.n. Flóahrepps 150.000   
Bláskógabyggð / Skálholt Söguslóð, fræðsluskilti í Skálholti Skálholtsstaður

200.000   

Bláskógabyggð / Geysir Reiðstígar við Geysi í Haukadal Hestamannafélagið Logi 500.000   
Þjórsárdalur Vatnsöflun fyrir ferðamannastaði  Skeiða og Gnúpverjahreppur 250.000   
Hrunamannahreppur Upplýsingaskilti við Brúarhlöð Ferðamála.n. Hrunamannahrepps 200.000   
Hrunamannahreppur Gönguleiðir á Miðfell Þróunarfélag Hrunamannahrepps 200.000   
Vestmannaeyjar Gönguleiðir í nýja hrauninu Upplýsingamiðst. í Vestmannaeyjum 250.000   
Vestmannaeyjar Göngukort um söguslóð Tyrkjaránsins Upplýsingamiðst. í Vestmannaeyjum 250.000   
Dalir og Reykhólar Gönguleiðakort, Dalir -Reykhólar -Vestfirðir