Fara í efni

Aðkoma að gamla Garðskagavitanum vígð

Garðskagaviti
Garðskagaviti

Á dögunum var vígð aðstaða við gamla vitann á Garðskaga en unnið hefur verið að því að gera aðkomuna aðgengilega fyrir alla. Framkvæmdirnar voru styrktar af Ferðamálastofu.

Gamli Garðskagavitinn er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Ferðamálasamtök Suðurnesja létu vinna verkið og að sögn Kristjáns Pálssonar, formanns Ferðamálasamtaka Suðurnesja, er það opinber stefna að sem flestir áfangastaðir ferðamanna verði aðgengilegir fyrir alla og er þetta verkefni unnið samkvæmt þeirri áætlun. Suðurnesin taka þátt í þessu verkefni og hafa gert áætlun um að lagfæra aðgengið að 20 ferðamannastöðum á Reykjanesi. Næsta verkefni er í undirbúningi sem er aðgengi að Gunnuhver á Reykjanesi og að Valahnjúk.


Það var Róbert Aron sem klippti á borðann með aðstoð Ólafar Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra og Oddnýjar Harðardóttur bæjarstjóra og opnuðu þau þannig aðgengið út að Garðskagavita formlega.