Fara í efni

Aðgengi verði eðlilegt gæðaviðmið

Ferðaþjónusta fyrir alla
Ferðaþjónusta fyrir alla

Góð viðbrögð voru við námsstefnunni "Ferðaþjónusta fyrir alla" sem samgönguráðuneytið, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Öryrkjabandalagið gengist fyrir síðastliðinn föstudag. Efni frá námsstefnunni er nú aðgengilegt hér á vefnum.

Allir geti ferðast þangað sem þeir óska
Um er að ræða verkefni sem að Nordiska Handikappspolitiska Rådet hefur stýrt fyrir þá sem starfa í greininni og einnig þá sem bera ábyrgð á ferðamálum innan stjórnsýslunnar. Markmið ráðsins er að hugtakið verði að mikilvægum þætti innan ferðaþjónustu og atvinnulífs bæði á norrænum vettvangi og innan hvers lands. "Ferðaþjónusta fyrir alla" snýst um að allir, óháð hvaða fötlun þeir búa við, geti ferðast þangað sem þeir óska. "Ferðaþjónusta fyrir alla" á því við allt sem snertir ferðamennsku, allt frá ferðum og flutningum, heimsóknum á áhugaverða staði, að deila upplifun, mat og húsnæði auk upplýsinga á hentugu formi.

?Markmið verkefnisins er að hvetja þá er starfa í og við ferðaþjónustuna til að líta á aðgengi sem eðlilegt gæðaviðmið. Jafnframt var tilgangurinn að skapa vettvang til að þeir sem starfa að ferðamálum, hið opinbera og samtök fatlaðra, fái tækifæri til að skiptast á skoðunum,? segir Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu.

Tveir erlendir fyrirlesarar
Alls fluttu níu fyrirlesarar erindi á námsstefnunni, þar af tveir erlendir. Annarsvegar var það þýskur hagfræðingur, Dr. Peter Neumann, sem hefur á vegum þýskra yfirvalda gert úttekt á efnahagslegri þýðingu þess að allir hafi jafna möguleika til ferðalaga. Þá fjallaði Ingemar Oderstedt, ráðgjafi hjá Nordiska Handikappspolitiska Rådet, um ferðaþjónustu fyrir alla frá sjónarmiði ráðsins.

Erindi og glærukynningar frá námsstefnunni, ásamt myndum, eru nú aðgengilegar hér á vefnum.