Fara í efni

Aðalfundur Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins

Reykjavík
Reykjavík

Aðalfundur Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins (FSH) verður haldinn í Hlégarði í Mosfellsbæ, föstudaginn 22. febrúar 2008 og hefst kl: 14:00.

Formaður samtakanna er Pétur Rafnsson. Af verkefnum síðasta starfsárs nefnir hann að samtökin tóku þátt í Ferðasýningunni 2007 (áður Ferðatorg) með öðrum landshlutasamtökum, eins og þau hafa gert frá árinu 2000. Áfram var unnið eftir samstarfssamningi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og FSH um kynningarmál og upplýsingamiðlun sem Pétur segir vera komna góða reynslu á. Á þeim vettvangi sé ýmislegt á döfinni til að efla kynningu á svæðinu enn frekar. Samtökin áttu í fjórða sinn aðild að verkefninu Ferðalangur, með Höfuðborgarstofu og fyrirtækjum á svæðinu, og tókst nokkuð vel til. Loks nefnir Pétur að fulltrúar FSH hafi tekið virkan þátt í starfi Ferðamálasamtaka Íslands og fleiri samtaka og ráða tengdum ferðamálum og ferðaþjónustu.

Dagskrá :

Kl.: 14:00  Afhending fundargagna

Kl.: 14:05  Setning - Pétur Rafnsson, formaður Ferðamálasamtaka hbsv. 

Kl.: 14:10  Ávarp Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Kl.: 14:25  Aðalfundarstörf skv. lögum FSH

Kl.: 15:30  Kaffihlé
 
Kl.: 16:00  Framhald aðalfundarstarfa skv. lögum FSH

Kl.: 16:30  Fundarslit
  
Kl.: 16:40  Móttaka

Fundarstjóri: Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ.

Fulltrúar sveitarfélaga og fyrirtækja skrái sig á fundinn í síma 898-6635 eða petur@icetourist.is .