Ábyrgara ferðamynstur þrátt fyrir minni umræðu tengda sjálfbærni á alþjóðavísu
Evrópska ferðamálaráðið (ETC) var að birta áhugaverðar niðurstöður á þróun í ábyrgum ferðavenjum. Þær sá leiða í ljós að þótt sjálfbærni hafi upp á síðkastið fengið minni athygli í opinberri umræðu og fjölmiðlum, þá heldur hegðun ferðalanga áfram að þróast í átt að ábyrgara ferðamynstri.
Ferðalög fólks um allan heim hafa haldið áfram að aukast og sem fyrr er Evrópa vinsælasti áfangastaðurinn. Á sama tíma hafa áhyggjur af langtímaáhrifum ferðaþjónustu á áfangastaði, heimamenn og umhverfið aukist. Í ljósi þessa setti ETC af stað markaðsrannsóknarverkefni sem metur hversu ábyrgt fólk frá farmörkuðum sem heimsækir Evrópu ferðast og hvernig slíkar ferðavenjur þróast með tímanum.
Verkefnið beinist að fjórum víddum ábyrgra ferðalaga sem eru bæði mikilvægar fyrir evrópska áfangastaði og endurspeglast í markaðsherferðum ETC:
- að ferðast utan háannatíma,
- að heimsækja minna þekkt svæði utan hefðbundinna ferðamannaleiða,
- að taka þátt í staðbundinni menningu og styðja við heimafyrirtæki og samfélög,
- og að velja umhverfisvænar samgöngur.
Allir þessir þættir hreyfast upp á við miðað við árið 2024. Rannsakendur benda þó á að þrátt fyrir aukinn vilja til að ferðast á ábyrgari hátt þá geta ýmis hagnýt atriði takmarkað getu ferðalanga til að fylgja þessum áformum eftir til fullnustu. M.ö.o. munur getur verið á ásetningi og raunverulegri hegðum. Til dæmis segja 53% svarenda að þeir hafi haft mikinn ásetning um að ferðast utan háannatíma en 49% segjast í raun hafa gert það, sem sýnir 4% bil milli ásetnings og hegðunar.