Fara í efni

Á ferð um Ísland komin út

Á ferð um ísland 2006_L
Á ferð um ísland 2006_L

Ferðahandbókin Á ferð um Ísland er nú komin út hjá Útgáfufélaginu Heimi. Bókin er á þremur tungumálum. Enska útgáfan Around Iceland hefur komið út samfellt í 31 ár, íslenska útgáfan í 16 ár en þýska útgáfan Rund um Island kemur nú út í 9 sinn.

Fram kemur í frétt frá Heimi að bókin hafi aldrei verið stærri eða 224 bls. Ritunum er dreift í 90.000 eintökum á alla helstu ferðamannastaði landsins. Í bókinni er umfjöllun um hvern landshluta, þjónustulistar sem eru uppfærðir árlega í samstarfi við heimamenn, ásamt kortum þar sem gististaðir, tjaldsvæði og sundlaugar eru númeraðar á svæðum utan þéttbýlis. Sambærileg kort eru einnig frá helstu þéttbýlisstöðum landsins. Þá er einnig að finna hálendiskafla með hálendiskorti og þjónustulistum í bókinni. Fremst í bókinni er síðan að finna ýmsan fróðleik um land og þjóð, það helsta sem er á döfinni í sumar, afþreyingu og margt fleira.

Fram kemur í fréttatilkynningu að sl. sumar hafi verið gerð könnun meðal erlendra ferðamanna á notkun bókanna og kom í ljós að meira en þriðjungur þeirra notaði bækurnar og 48% þýskumælandi ferðamanna notaði Rund um Island. Auk þess má geta að bækurnar eru einnig birtar í vefútgáfu á www.heimur.is/world  Ritstjóri bókanna er Ottó Schopka.