Fara í efni

Á ferð um Ísland komin út

Á ferð um ísland 2008
Á ferð um ísland 2008

Ferðahandbókin Á ferð um Ísland er nú komin út átjánda árið í röð. Útgáfufélagið Heimur gefur bókina út sem fyrr og er hún á þremur tungumálum, eða íslensku, ensku og þýsku. Enska útgáfan Around Iceland hefur komið út samfellt í 33 ár en þýska útgáfan Rund um Island kemur nú út í 11. sinn.

Bókin hefur aldrei verið stærri eða 240 blaðsíður. Ritunum er dreift í 100.000 eintökum á alla helstu ferðamannastaði landsins, eða alls um fimm hundruð staði. Í bókinni er umfjöllun um hvern landshluta, þjónustulistar sem eru uppfærðir árlega í samstarfi við heimamenn, ásamt kortum þar sem gististaðir, tjaldsvæði og sundlaugar eru númeraðar á svæðum utan þéttbýlis.  Sambærileg kort eru einnig frá helstu þéttbýlisstöðum landsins. Þá er einnig að finna hálendiskafla með hálendiskorti og þjónustulistum í bókinni. Fremst í bókinni er síðan að finna ýmsan fróðleik um land og þjóð, það helsta sem er á döfinni í sumar, afþreyingu og margt fleira. Ritstjóri bókanna er Ottó Schopka.

Bækurnar eru einnig birtar í vefútgáfu á www.heimur.is/world