Fara í efni

Á ferð um Ísland komin út

aferd2012
aferd2012

Á ferð um Ísland er nú komin út 22. árið í röð. Ferðahandbókin kemur út hjá Útgáfufélaginu Heimi og er gefin út á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku.

Í frétt frá útgefanda segir að enska útgáfan Around Iceland hafi komið út samfellt í 37 ár en þýska útgáfan Rund um Island komi nú út í 15. sinn.  Ritunum er dreift í 100.000 eintökum á alla helstu ferðamannastaði landsins eða um 500 staði. Bækurnar eru í upplagseftirliti Samtaka ferðaþjónustunnar.

Í bókinni er umfjöllun um hvern landshluta, þjónustulistar sem eru uppfærðir árlega í samstarfi við heimamenn, ásamt kortum þar sem gististaðir, tjaldsvæði og sundlaugar eru númeraðar á svæðum utan þéttbýlis.  Sambærileg kort eru einnig frá helstu þéttbýlisstöðum landsins. Þá er einnig að finna hálendiskafla með hálendiskorti og þjónustulistum í bókinni. Fremst í bókinni er síðan að finna ýmsan fróðleik um land og þjóð, það helsta sem er á döfinni í sumar, afþreyingu og margt fleira.

Miklar vinsældir Íslandsbóka Heims hafa fyrir löngu sannað gildi þeirra, segir í fréttinni.  Sumarið 2008 var gerð könnun meðal erlendra ferðamanna á notkun bókanna og kom í ljós, að meira en þriðjungur þeirra  notaði bækurnar og 48% þýskumælandi ferðamanna notaði Rund um Island.  

Fjöldi fallegra ljósmynda, m.a. eftir Pál Stefánsson ljósmyndara Heims,  skreyta bækurnar og er hægt að kaupa myndirnar á www.heimur.is   Auglýsingasala gerir kleift að dreifa bókunum ókeypis en í ár prýðir fjöldi nýrra auglýsingasíðna bækurnar. Margar af nýju auglýsingasíðunum hafa verið hannaðar hjá Heimi. Bækurnar eru birtar í vefútgáfu á www.heimur.is/world en einnig er QR-kóði á forsíðu þeirra, sem gerir eigendum snjallsíma kleift að hlaða efni þeirra niður af netinu.
Ritstjóri bókanna er Ottó Schopka.