Fara í efni

83% landmanna ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu

Tjaldsvæðin eru vinsæl á ferðalögum Íslendinga um eigið land.
Tjaldsvæðin eru vinsæl á ferðalögum Íslendinga um eigið land.

83% landmanna ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu samkæmt niðurstöðum könnunar MMR. Litlar breytingar  reyndust á ferðaáætlunum Íslendinga frá því árið áður.

Heldur fleiri ætla bara að ferðast innanlands

MMR kannaði á tímabilinu 13. til 19. júní hvort Íslendingar ætluðu að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu. Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust 54,7% eingöngu ætla að ferðast á Íslandi í sumarfríinu nú borið saman við 52,8% í júní 2012, 28,1% ætla að ferðast bæði innan- og utanlands í sumarfríinu borið saman við 27,3% í júní 2012, 7,1% sögðust eingöngu ætla að ferðast utanlands borið saman við 7,1% í júní 2012 og 10,1% sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu borið saman við 11,9% í júní 2012.

Gott svarhlutfall

Spurt var: Ætlar þú að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu? Svarmöguleikar voru: Já, innanlands, Já, utanlands, Já, bæði innanlands og utanlands, Nei, ætla ekki að ferðast neitt og Veit ekki/vil ekki svara.  Samtals tóku 95,8% afstöðu til spurningarinnar.