Fara í efni

60 skip með farþegaleyfi Siglingastofnunar

Húni II
Húni II

Samkvæmt lögum um eftirlit með skipum eru farþegaflutningar í atvinnuskyni með skipum sem lögin gilda um, háðir leyfi Siglingastofnunar Íslands. Þar með eru taldar skoðunar- og veiðiferðir ferðamanna. Skal slíkt leyfi gefið út þegar leitt er í ljós að fullnægt er ákvæðum laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim, svo og ákvæðum annarra laga og reglugerða sem gilda um skip í farþegaflutningum.

Fyrir farþegaskip skal fjöldi í hverri áhöfn ákveðinn af Siglingastofnun Íslands með hliðsjón af gerð skips, fyrirkomulagi þess og búnaði, svo og farsviði þess og útivist, þannig að fjöldi í áhöfn og skipting starfa fullnægi skilyrðum um að unnt sé að sinna öllum þáttum sem tryggja öryggi farþega, skipverja og skips. Skipstjóri skal varðveita um borð í skipi skjal er sannar gildi leyfisins.

Á vefsíðu Siglingastofnunar er listi yfir skip sem hafa leyfi Siglingastofnunar til að stunda farþegaflutninga. Þar koma fram upplýsingar um nafn skips, skipaskrárnúmer, gildistími leyfis, farsvið, öryggismönnun og hámarksfjöldi farþega.

Óheimilt er að stunda farþegaflutninga í atvinnuskyni á öðrum skipum en þeim sem hafa farþegaleyfi Siglingastofnunar Íslands samkvæmt fyrrnefndum lista. Á vef Siglingastofnunar má einnig nálgast upplýsingar um lög og reglur sem gilda um rekstur farþegaskipa