Fara í efni

480 kröfur vegna Tango Travel og Komdu út

480 kröfur vegna Tango Travel og Komdu út

Frestir til að senda inn kröfur til Ferðatryggingasjóðs vegna niðurfellingar á ferðaskrifstofuleyfum Tango Travel ehf. og Komdu út ehf. (Eagle golfferðir) eru nú liðnir. Ferðaskrifstofuleyfi félaganna voru felld niður í desember síðastliðnum.

 

Hafði áhrif á ferðaáætlanir tæplega 2.000 manns

Ferðatryggingasjóði bárust 196 kröfur vegna Komdu út ehf. og 284 kröfur vegna Tango Travel en ógjaldfærni félaganna hafði áhrif á ferðaáætlanir tæplega 2.000 manns.

 

Hvenær má vænta niðurstöðu?

Vinna við yfirferð krafna stendur yfir og má búast við niðurstöður liggi fyrir hjá viðskiptavinum Komdu út ehf. í lok febrúar og hjá viðskiptavinum Tango Travel ehf. um miðan mars.